Some gooood shit
♥Krílið Mitt♥
Dagsetning
23. febrúar 2012
07.07.2007 22:57:03 / harpa

070707

Flottur dagur í dag.. 070707 sá dagur sem ég var að vonast að litla krílið myndi láta sjá sig á, en neiii það er ekki að fara að gerast :( En lítið að frétta annars, er alveg vooooðalega þreytt alltaf núna jamm....! Svo er potturinn ekki kominn, hann kemur ekki til landsins fyrr en 18 júlí, þannig ég fer ekki i hann áður en ég mun eiga, ömurlegt jámm...! Svo er ég að fara til akureyrar á morgun að bíða eftir krílinu, aðeins 4 dagar eftir í settan dag :D:D Seinasti bloggið mitt áður en ég verð orðin mamma:o jiii hehe! En samt frekar leiðinlegt að þurfa að vera bíða á akureyri kannski í 2 vikur, en ég er alveg pottþétt á því sko að ég mun ganga soldið framyfir. Ætlaði nú að eiga á Neskaupstað en það kom svo upp eitthva vandamál með það. SKO fyrst ætlaði ég að eiga í Keflavík en fæðingadeildin lokuð þar þannig ég þurfti að sætta mig við að fæða á nesk og svo þegar ég er buin að sætta mig við það þá kemur upp eitthva vandamál með það og þarf ég að sætta mig við að eiga á skureyri.... veesen haa? En hún má sko alveg fara að láta sjá sig elsku bumbukrúttið, ég er samt ekki búin að vera með neina verki eða neitt svollis, er bara helvíti hress fyrir utan þreytu :P En allaveganna þá hef ég nú ekki mikið annað að segja og er að spá að fara að pakka niður, er búin að vera leiðinni að því í allan dag.

Bleble and wish me good luck :haha:

Harpa

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 20:56:49 / harpa

Smá update

Halló!

Hva segjir fólkið? Ég segji allt ljómandi gott:) Það er svosem lítið að segja frá þar sem ég geri varla neitt annað að hanga heima núorðið! En ég fór í sónar í morgun, það var yndislegt að sjá litla krílið. Og allt leit mjög vel út. Og hún er bara orðin stór og flott:) Var aðeins yfir meðaltali og legvatnið líka, þannig ekki furða að ég er komin með svona stóra bumbu hehe:P En hún mældist ca 11 merkur og samkvæmt því þá myndi hun vera svona 17 merkur við fæðingu. En ég veit þetta er náttla ekkert 100% bara svona viðmiðun. En ég giska að hún verði bara svona 14-15 merkur sko:haha: Og nú eru bara 6 vikur í settan dag og alveg slatti eftir að gera og kaupa. Já það styttist í að ég fái krílið í hendurnar, I can't wait :D

En útí annað þá verð ég nú að monta mig á einu.. núna í júní, eftir einhverjar vikur þá verðum við komin með heita pott í garðinn :haha: újé! Bara niiice sko:) Það er líka búið að vera svo ömurlegt þegar ég hef verið að drepast í bakinu og bara gegt þreytt að geta ekki farið í bað og chillað, þar sem maður er ekki með baðkar og ekki nenni ég nu að vera borga mig í sund hérna til að geta farið í pottinn. En það er eftir að vera yndislegt þegar potturinn er kominn og geta chillað bara í pottinum úti garði í sumar:haha: Og btw þá erum við fyrsta fólkið hérna á Seyðisfirði sem fáum okkur heitan pott! varð bara benda á það sko hehe:P

En jæja er farin að gera eitthvað:)

Until Next..

Bless!


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 00:36:47 / harpa

Já Halló!!!

Kominn tími til eða..? Ég er barasta ekki að nenna þessu bloggeríi!:P Svosem ekkert að frétta síðan seinast. Fór í páskabingo í kvöld og var það hundleiðinlegt þar sem ég vann ekki neitt, bara ósanngjarnt, fer aldrei aftur á þetta:^) En það er bara rólegheit hjá manni núna, er búin að vera í algjöru letistuði um páskana, nenni ekki að gera neitt:P Enda er bara fínt að liggja heima með bumbuna útí loftið:D Og svo er ég farin að finna svo svakalega til í grindinni og bakinu, spurning hvort það sé að koma fram eitthva merki um grindargliðnun, en ég læt tékka á því þegar ég fer næst í mæðraskoðun:) Þannig þá er um að gera að taka því bara rólega! Svo er ég orðin svo pirruð á því að passa orðið í EKKI neitt af fötunum mínum, já þetta getur verið erfitt. En þetta er allt að styttast og ég get varla beðið :D:D:D

En ég er búin að búa til barnalandssíðu, þannig þið kæru vinir og ættingjar getið fylgst með manni ef þið hafið áhuga. slóðin er http://www.barnaland.is/barn/58644   ;)

Annars hef ég nú ekkert meira að segja nema bara gleðilega páska og hafið það gott elskurnar og skal ég reyna að koma með blogg aftur eftir ekki meira en mánuð allaveganna:P hehe

Harpa Bumbulína :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 00:04:59 / harpa

Fyrsta bloggið á nýja árinu...

...kominn tími til held ég! Þótt það sé nú ekkert mikið að segja frá. well.. ég er loksins búin að skrá mig í fjarnám og byrja ég eftir helgi og bara hlakka svolítið til, hef ekki verið í skóla eða lært neitt síðan í ME árið 2004.. hehe:) Og svo er það bara að finna sér einhverja vinnu hérna, svosem ekki mikið í boði eeen eitthvað verður mar að gera. Þýðir ekkert ennþá að hanga bara og sofa og éta!!! Og nú er enn ein helgin runnin upp, sem þýðir líka að þorrablótið er á morgun, þá verður nú eitthva stuð býst ég við! En ég verð að vinna á því, semsagt í fatahenginu.. hehe gaman að því! svo það er fullt hús af gestum, sem eru líka að fara á þorrablót og svona..! En annars hef ég voða lítið að segja.. heyrðu jú,eitt merkilegt auðvitað...... nú er ég búin að vera reyklaus í 26 daga:D:D:D þar sem ég hætti akkurat 1 jan. og gengur það bara ágætlega:) og svo er bara málið að skella sér suður eftir helgi með mömmu og heimsækja ættingja og vini og þarf ég líka að fara til tannlæknis, það verður bara fínt. Langt síðan maður hefur kikt suður:$

Hef þetta ekki lengra! Er að passa og ætla bara leggjast uppí sófa og horfa á tv með litlu frænku;)

Until Next..

Harpa... sem hlakka til 14.Feb :D


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 18:35:21 / harpa

Well well..

Maður er búin að vera alltof latur að blogga hérna.. össs! En þá eru jólin yfirstaðin og er ég bara sátt með hvernig þau fóru. Fékk voðalega gottað borða á aðfangadag og borðaði líka yfir mig og var að drepast i maganum það sem eftir var kvöldsins. Og þar sem ég er orðinsvo "gömul" þá fékk mar voðalega fáa pakka en samt flotta og var mjög sátt með allt sem ég fékk:D En annars er maður ekki búin að vera gera neitt af sér annað en að liggja í leti og éta og sofa mikið:haha: svo annan í jólum þá var okkur boðið i mat hjá Ísleifi og Elvu og eftir það fórum við bara að spila og voru sumir orðnir vel ölvaðir þegar líða tók á kvöldið.. hehe og það var kikt á láruna og bara djammað en ég var bara driver þetta kvöld og var mikið af fullu fólki.. meira ruglið:P En svo á ég bara afmæli ekki á morgun heldur hinn.. jeij loksins :haha:  En hvernig eru þessi áramót nú eftir að verða þar sem það á ekki að vera ball hérna.. maður er nú varla að nenna uppá Egs. :$ Þetta er nú meira skítaplacið!! well.. þetta kemur allt í ljós!! En allaveganna þá óska ég ykkur öllum bara gleðilegra jóla og farsældar á nyju ári;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 09:45:54 / harpa

Kominn tími á blogg eða...??

Ákvað að koma með eina færslu hérna fyrir jólin :P Margt nú búið að ske síðan seinast en ég nenni nú ekki að fara deila því með ykkur:P En allaveganna þá er farið að styttast í jólin, bara 19 dagar til jóla! En ég hlakka ekki neitt til jólanna, mætti alveg sleppa þeim fyrir mér! ég hlakka kannski aðeins meira til 31.des þar sem ég á afmæli þá og það eru akkurat 26 dagar þar til ég á afmæli..loksins :D En útí eitthva annað... Þá var þetta bara róleg helgi hjá mér.. ójáá mjög róleg. Fór að sofa kl.half 9 á föstudaginn og half 11 á laugardaginn.. var eitthva óvenju þreytt og hefur þetta ekki skeð í mörg ár held ég, að ég hafi verið heima hjá mér um helgi!!! og svo var ég líka rosadugleg og bakaði, eitthva sem ég geri aldrei! Og já svo er ég hætt að reykja, ég og mamma hættum að reykja saman og er þetta dagur 3 hjá mér :D Og mér er illt í nefinu, því ég var hjá tannlækni í gær og hann deyfði mig svo vel að ég var dofin í öllu andlitinu og mér kitlaði svo í nefinu að ég held ég hafi klórað mig soldið vel að ég fékk sár eða eitthva og er alltaf hnerrandi núna, frekar óþægilegt:S En svo fer ég til akureyrar næstu helgi, kikja á ættingjana þar, og sjá nyju íbúðina hjá Jónborgu þar sem hún yfirgaf Seyðisfjörð á laugardaginn! jamm og leika sér bara eitthva! Svo kemur Bjarni austur 15.des og ísleifur 20.des held ég.. flott mál! En já allaveganna nenni ekki að bulla meira...blessss

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 22:55:01 / harpa

Mánudagur 23.Oktober

Ég ætla að byrja á að segja ykkur að ég er alls EKKI að fíla það að snjórinn er kominn !"#$%& :^) Drullukalt mar!! Afhverju getur snjórinn ekki bara komið 20.des eða eikkað!!? En allaveganna.. þetta var nice helgi, fór á láruna bæði á föstudag og laugardag og var alveg ágætis stuð og slatti af fólki miðað við að þetta er Seyðisfjörður:P En ég er samt að spá að taka mér smá pásu í þessu djammeríi, allaveganna áfenginu mar:) hehe! En ég fór í smá dinnerparty í gær og mmm hva þetta var góður matur. Micke var svo góður að elda handa okkur heima hja Sollu.. nice:) En vitið menn, ég Harpa Hrund er að fara í nám finally:o Er að fara í fjarnám í tölvuviðgerðir frá tölvuskólanum. Og tekur þetta allt 6 mánuði og útskrifast ég þá sem computer technician og svo gæti ég haldið áfram og tekið A+ gráðuna frá CompTIA. Jammjamm.. þá myndi ég nú verða meira tölvunördinn mar.. hehe:D

HaHa.. þetta er algjör snilld mar :D:D

eeen.. Im ouuut!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 06:01:23 / harpa

Jammogjá

Jahá..



En annars þá er ekki frá neinu að segja frá svosem.. þetta var fín helgi og stefni ég svo á að fara suður næstu helgi :)

Og commentið þið þarna sem skoðið þetta.. já kannski leiðinlega blogg :P helvítis drulluhæsnin ykkar ;) hehe :D

Harpa kveður...:klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 21:40:55 / harpa

Hehehe..

Jeij Finally.. netið komið í lag :D Það er bara búið að vera bilað i næstum viku og það er alveg búið að vera hræðilegt að vera án þess :P

En þá kem ég með eitt svaðalegt blogg....

Eitt drullufyndið hérna fyrir ykkur ;)

Þú veist að það er árið 2006 ef.....

1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega leist tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar. EF þú féllst fyrir þessu ...



Aha ekkert svona ! þú féllst fyrir þessu


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 05:55:39 / harpa

Yeeaahh!! Snilldin ein :D

Jæja þá er enn ein helgin yfirstaðin.. úff ekkert smá mögnuð mar :D Ég veit ekki hvar mar á að byrja. Allaveganna þá fór mar á Neskaupstað á föstudaginn þar sem það var trúbadorahátíð þar. Ég samtsem áður man ekkert allt sko eða hvenær hvað var hvað en man mar fór að sofa bara um morguninn. Ég er búin að sofa voða lítið þessa helgi mar!

En laugardagurinn og sunnudagurinn var sko málið!! Þá komu líka restin af trúbadorunum.Ég man samt minna eftir laugardagskvöldinu-nóttinni en það var bara eins og áður djammað útí eitt og endað i party hja Bjarna Tryggva og þar sofnaði ég bara i sófanum og vaknaði svo um daginn að Tóti og Einar Örn og Herbert Guðmunds voru komnir í svaka stuði og jámm.. hehe :haha: En svo löbbuðum við aftur uppí egilsbuð og þetta er frekar langt og mar var helviti lengi á leiðinni þar sem sumir voru að leita einhverju.. haha :lol: En svo var bara chillað uppí herbergi og allir eitthva rosalega kátir og djöfull var hlegið mar.. sjitt!! Og Einar og Hebbi sömdu einn alveg rosalegt lag mar.. hehe :D Mar var ekkert smá nett ruglaður mar..! Held fólkið sem var að vinna þarna hafi nú samt skemmt sér konunglega að fylgjast með þessum vitleysingum.

 En svo fór mar að hugsa hvernig mar kæmist aftur á Sey og þá ákváðum við bara að við færum á bílnum hans Hebba og ég var látin keyra þar sem ég var eina sem var i ástandi til þess. Og hann á einhverjum pinulitlum bíl með eitthva 250kg af bókum og límdu þeir gitartöskuna hans einars á toppinn og svo var þeim troðið afturí hjá öllum þessum bókakössum ásamt 3 töskum og hebbi frammí með gítarinn hans einars i fanginu og það var enginn að geta hreyft sig þarna nema ég.. fór bara best um mig :) En svo þegar mar var komin á Sey þá var bara farið til Tóta og chillað og drukkið bjór og sona. En ég lenti í þarna einu svakalegu þegar ég var komin heim sem var bara geggjað haha, en tölum ekkert meira um það hér:) En svo var bara farið að sofa og það var mjög skrautlegt hvar hver svaf og ég ekki með neitt á mér og vaknaði svo alveg að dreeeepast úr kulda mar meðan sumir höfðu það bara gott undir sæng.. hehe:) en svo vaknaði mar daginn eftir og það var nu bara chillað allan daginn og sötrað bjór og hlegið ennþá meir mar! Ég get svarið að ég hef ekki hlegið svona mikið lengi lengi eins og um þessa helgi. Sjitturinn titturinn mellan og hóran :P hehe.. þetta var svakaleg helgi mar,og maður kynntist lika fullt af skemmtilegu fólki , mjög ánægð með hana :D En núna er það bara alvaran, mar verður að fara að vinna og svona gera eitthva að viti.

Og já það var auðvitað tekið helling af myndum, hátt í 200 myndir en það voru nú sumar sem voru bara alveg útí hött og sumar sem eru bara ekki við hæfi að fara á síðuna :P en ég er buin að vera í þviliku basli að koma þessum andsk myndum inná einhverja síðu og það gekk á endanum! Er líka með eitthva af sniðugum videoum en ég læt þau inn seinna! en síðan með myndunum er http://new.photos.yahoo.com/harpa10  Enjoy :)

En já þetta er orðið helviti gott.. er farin að sofa.. ekki veitir af :P

Adios ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 04:33:15 / harpa

Dæmisaga til umhugsunar..!

                                                                       (Gefið Ykkur Nú Tíma Og Lesið Þetta!)
Við erum ekki ódauðleg..

Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl. Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að “negla” þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar.

Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina.

Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín? Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur?

Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var “kúlið” alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.
                                                                                 Höf. Garðar Örn Hinriksson
Pælið nú aðeins í þessu...!!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 21:49:23 / harpa

fokkírass!!

niii!!? En like usual.. ekkert spennandi að frétta! Mar er eilla bara að vinna,djamma og sofa. Helgin over.. thank god segji ég nu bara! En þessi helgi var nu helviti hræðileg:cry: Ef ekki bara sú versta í mánuðinum eða bara árinu.. hmm!?:$ En fólk er fífl!! og ég held ég vinni samt þann titil. Jebbjebb! Anyway.. Mamma komin heim frá kanarí og þá er nú allur friðurinn úti:( en hey.. ógeðslega geðveikislega langar mig á Sensation mar!!!!!!!!!!! En ég á auðvitað ekki pjéning.. arg!! Mins langar soooooo! Djöfull öfunda ég það fólk sem er að fara. En ég er rosalega þreytt mar. Vaknaði bara óvenju snemma(semsagt kl.2 hehe) og ég er buin að vera þvilikt dugleg að hjálpa Alexi að lappa upp höllina sína:) Og þetta er ekkert orðið neitt smá flott og kosy.. all thanks to me:haha: En vitið hva8| ég er búin að missa af minum uppáhaldsþáttum, beverly hills og melrose place alltof oft! OMG!! Ég steyngleymi þeim alltaf eða þá ég er sofandi:cry: uhuhu.. líf mitt er ónýtt!! en allaveganna ég var barasta að koma úr sturtu og að spekulera að fara að fá mér að éta og fara svo að sofa.. sniðugt? jú!! Later pípol! Harpa :klikk:

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 21:39:46 / harpa

úúú jéééé

YoYo...!! Jæja þá er mar komin heim.. búin að vera i Keflavik og djöfull var gaman :) Og ég var þarna á ljósanótt og þessi helgi og það var sko djammað feitt!! Og besta djammið bara árinu.. ussuss. Var bara að frá fimmtudegi til sunnudags og svaf nánast ekki neitt. Hitti fullt af skemmtilegu fólki:) Hitti Snædísi og kom hun með mér að kikja á lífið:) Og svo hitti ég hann Einar Örn trúbador og var bara að djamma með honum.. fórum svo heim til hans að chilla eitthva og hann samdi texta um okkur, alveg geggjað fallegur og flottur texti en hann er bara eftir að gera lag og hann ætlar að láta það á næstu plötu hjá sér:D magnað mar!!  En þegar hann kemur austur þá spilar hann það fyrir mig :P  Maður var svo bara endalaust flakkandi þarna á milli skemmtistaða en var samt ekki að meika að vera lengi inná neinum á laugardaginn, það var alveg gjörsamlega troðið. Og svo er ég rosalega ánægð með að hafa hitt Óla Geir og Jóa bróðir hans og spjallaði alveg slatta við þá og fékk knús meira segja:D hehe en Æjh vá þetta var bara geggjuð helgi, rosalega ánægð með hana:D (nema kannski fyrir utan sum atriði sem var bara rugl:P) nenni samt svosem ekkert vera blogga eitthva mikið um þetta. En það er rosalega nice að vera komin heim og er ég bara ein heima.. ahh:) En þá er það bara að fara vinna og ég býst nú við að ég taki því rólega næstu helgar og svona.. hlakka samt til næstu helgar;)  hihihi!! En jááá..

heyrðu já ef einhver vill alveg gullfallegan og góðan kettling þá talið við mig því ég bara get alls ekki lóað þeim :( Kisa min átti nebbla 5 kettlinga og ég get bara losað mig við 2 og vil ekki lóa hinu 3.

Ég er farin i sturtu.. hver vill koma með??? ;) hehe

 Harpa kveður...


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 19:09:07 / harpa

Hæhó..

hmm já.. svosem ekki mikið að frétta!! Ein enn helgin yfirstaðin og var hun mjög skemmtileg. Ég fór uppá egs á svarthvítu hetjuna á föstudeginum og hitti slatta af fólki sem mar hefur nu ekki séð lengi:) Og svo var götupartý og bæjarhátíð hérna á laugardeginum og djöfull skemmti ég mér vel :D Og svo var ég nu góð og keyrði með hana katrini uppá bjólf i gær og löbbuðum þar slatta.. svaka dugleg:D Svooo... fór ég pöbbinn i gær, ekkert gaman! Og fékk fullkomna staðfestingu á því í gær að ein manneskja er algjööör hálviti eða þúst held sé ekki einu sinni til orðið yfir þetta! Anyway.. Þá ætlar Katrin að halda kveðjuparty i kvöld pöbbnum. Hun fer að fara frá mér aftur heim til þýskalands:( En svo er mins að fara suður á fimmtudaginn eða föstudaginn. Svo er mamma min held ég bara að fara til kanareyjar i næstu viku og verður i 2 vikur og ætla að skilja litlu stelpuna sina bara eftir heima. En það verður bara nice að vera laus við hana i pinu tima. En læt þetta gott heita.. Harpa Hrund

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 19:55:38 / harpa

Versló búin

Þá er er versló yfirstaðið og skemmti ég mér bara mjög vel:) Fór til akureyrar á fimmtudaginn og kom heim á sunnudaginn. En ég var eitthva frekar löt á föstudeginum eftir að hafa vakað alla nóttina á fimmtudeginum og kenni ég einni manneskju um það:P þannig ég fór að sofa eitthva 7 um kvöldið á föstud og vaknaði um miðnætti og ákvað þá að kikja aðeins i bæinn og var það fint og svo var tekið á því á laugardeginum og hitti slatta af fólki :) Og djöfull var samt geggjað mikið af fólki, sveitastelpa eins og ég var ekki að höndla þetta:P hehe. Svo fór ég Neskaupsstað á sunnudaginn og djamma og það var mjöög gaman:) Alveg hreint snilldar helgi.. mjög ánægð með hana :D sólarhringurinn minn var kominn i rust um helgina en ég náði að laga hann og er hann á réttu róli nuna. jájájá...! En annars er sumarið næstum bara að verða búið:cry: líst ekkert á það og hefi ég ekki glóru hva ég mun gera i vetur en langar svooo ekki að vera hérna á sey!!

Jammjamm.. hef eilla ekkert meira að segja! Bæjó


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Leitarbox